Bílabúð Benna hefur ákveðið að lækka verð á nýjum bílum frá Porsche og KGM vegna styrkingar íslensku krónunnar undanfarna mánuði. Um er að ræða töluverða lækkun á endanlegu söluverði og tekur strax gildi að sögn forstjóra Bílabúðar Benna.

Verð á Porsche Macan lækkar um milljón krónur og fer verðið því úr 14.950.000 kr. í 13.950.000 kr.

Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna, segir að gengi krónunnar hafi styrkst á undanförnum mánuðum og finnst honum mikilvægt að fyrirtæki axli ábyrgð í slíkum aðstæðum.

„Með þessari verðlækkun sýnum við skýra stefnu í verðlagningu sem byggir á raunverulegum aðstæðum í efnahagsumhverfinu.“

Íslenska krónan hefur styrkst umtalsvert frá vori og eru nú að berast til landsins bílar sem greiddir hafa verið á nýju gengi. Bílabúð Benna flytur inn ökutæki frá Porsche og KGM og lækkar nú verð á báðum vörumerkjum í takt við breyttar forsendur.

Fyrirtækið segir að um sé að ræða hluta af langtímamarkmiði þess um gagnsæi og sanngjarna verðlagningu.