Verði frumvarp, sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda af fjármála- og efnahagsráðuneytinu, að lögum munu heimildir lífeyrissjóða til fjárfestinga í erlendum gjaldmiðlum rýmka. Í frumvarpinu er lagt til að hámark gjaldmiðlaáhættu verði fært úr 50% af heildareignum lífeyrissjóðs í 65% í fimmtán jafnstórum skrefum frá 2024 til 2038.

Jafnframt er lagt til að lífeyrissjóðir þurfi að lágmarki að eiga eignir í sama gjaldmiðli og væntar lífeyrisgreiðslur þeirra til næstu þriggja ára, til þess að draga úr gjaldmiðlaáhættu fyrir sjóðfélaga, einkum þá sem eru komnir nærri lífeyristökualdri.

Þá er í frumvarpinu að finna tillögu um að hámark gjaldeyrisáhættu verði eingöngu bindandi á viðskiptadegi fjárfestingar. „Það hefur í för með sér að ef gengisþróun eða verðþróun á mörkuðum leiðir til þess að erlendar eignir lífeyrissjóða fara umfram hámarkið verður sjóðum ekki gert að selja eignir til þess komast niður fyrir hámarkið líkt og nú er. Frekari fjárfestingar sem auka gjaldmiðlaáhættuna verði þó óheimilar meðan fjárfestingar eru umfram hámark. Með þessu móti er stefnt að því að lífeyrissjóðir geti betur nýtt þær heimildir sem þeir hafa til fjárfestinga í eignum í erlendum gjaldmiðlum. Þá eru lagðar til breytingar er varða afleiðuviðskipti lífeyrissjóða sem auka möguleika þeirra til að nýta afleiður til gjaldeyrisvarna," segir í frétt á vef Stjórnarráðsins um málið.

Auk þess er í frumvarpinu tillaga að meginreglu um rafræna birtingu yfirlita og upplýsinga frá lífeyrissjóðum, en þeir skuli þó afhenda sjóðfélögum sem þess óska sömu gögn á pappírsformi þeim að kostnaðarlausu.