Hugmyndir um olíuleit í lögsögu Íslands falla misvel í landsmenn ef marka má könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið. Þar voru þátttakendur spurðir: Ert þú fylgjandi eða andvíg(ur) því að hefja á ný olíuleit í íslenskri lögsögu?

Alls voru 45,9% fylgjandi því að hefja olíuleit, þar af voru ríflega 19% mjög fylgjandi. Tæplega þriðjungur, eða ríflega 29%, var andvígur slíkum áformum, þar af voru tæplega 17% mjög andvíg. Fjórðungur þátttakenda svaraði hvorki né.

Umræða um olíuleit kom upp fyrr á árinu, en bæjarráð Fjarðabyggðar hafði þá beint því til stjórnvalda að endurmeta hagkvæmni olíuleitar. Saga olíuleitar á Íslandi teygir sig aftur til áttunda áratugar síðustu aldar en engin olíuleit hefur farið fram í lögsögu Íslands frá árinu 2018 og ekkert útboð verið haldið.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.