Kvika banki tilkynnti rétt í þessu slit á samrunaviðræðum við Íslandsbanka en undanfarna mánuði hafa staðið yfir viðræður um mögulegan samruna. Félögin hafa ásamt erlendum og innlendum ráðgjöfum sínum unnið að því að meta mögulega samlegð af samruna og stöðu sameinaðs félags á markaði.
Í tilkynningu frá Kviku segir að í ljósi atburða síðustu daga og þess að fyrirséð er að boðað verði til hluthafafundar hjá Íslandsbanka og mögulegs stjórnarkjörs, telur stjórn Kviku ekki forsendur til þess að halda samningaviðræðum áfram.
Kvika telur hins vegar að ávinningur gæti orðið af samruna félaganna og hefur stjórn Kviku lýst yfir vilja sínum til þess að hefja viðræður að nýju ef forsendur skapast.
Viðræðurnar hafa verið, að sögn Kviku, góðar en hafa hins vegar ekki enn leitt til sameiginlegrar niðurstöðu um skiptahlutföll.