Hagnaður Internet á Íslandi hf. (ISNIC), sem sér um rekstur .is lénakerfisins, nam tæpum 115 milljónum króna í fyrra og jókst um 26% milli ára.

Tekjur námu 386 milljónum króna og jukust um 10% milli ára. Rekstrarhagnaður (EBITDA) nam tæpum 179 milljónum króna og EBITDA-hlutfallið var því 46%.

Laun og launatengd gjöld félagsins drógust lítillega saman á milli ára, námu 141 milljónum króna árið 2021, samanborið við 150 milljónir árið 2020.

Lögð er til 118 milljóna króna arðgreiðsla á þessu ári eftir 70 milljóna arðgreiðslu á árinu 2021. Jens Pétur Jensen er framkvæmdastjóri og stærsti hluthafi félagsins með 30% hlut, en Pósturinn á auk þess 19% hlut í félaginu.