Lyfjaver, sem rekur apótek að Suðurlandsbraut 22, hagnaðist um 36 milljónir króna eftir skatta í fyrra, samanborið við tæplega 89 milljóna hagnað árið 2023 sem var metár hjá fyrirtækinu sem var stofnað árið 1998.

Sölutekjur Lyfjavers jukust um 14%, eða um 547 milljónir, milli ára og námu 4.464 milljónum króna í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) fór úr 281 milljón í 221 milljón milli ára. Fjöldi ársverka fór úr 55 í 60 milli ára.

„Félagið hefur undanfarin ár lagt verulega fjármuni í þróunarstarf en þeir eru farnir að skila sér til baka í formi aukinna viðskipta- og rekstrarhagræðingar. Gert er ráð fyrir að sú þróun muni halda áfram næstu ár,“ segir í skýrslu stjórnar í ársreikningi félagsins.

„Mikil samkeppni ríkir á starfssviði félagsins, einkum hvað varðar rekstur apóteks en starfsemi félagsins hvílir á fleiri stoðum sem felur í sér áhættudreifingu.“

Lyfjaver kveðst vera brautryðjandi tölvustýrðrar lyfjaskömmtunar (vélskömmtunar) hér á landi. Auk þess að reka apótek á Suðurlandsbraut – sem Lyfjaver segir vera eina apótekið á Íslandi sem noti nýjustu vélmennatækni við lagerhald og afgreiðslu lyfja – þá rekur félagið netverslun með lyf, heildsölu og dreifingarfyrirtæki.

Eignir félagsins voru bókfærðar á ríflega 1,5 milljarða króna í árslok 2024 og eigið fé var um 389 milljónir.

Lyfjavers er í 91,29% eigu fjárfestingarfélagsins Silfurbergs og 8,71% eigu Eurogen Pharma Pte. Ltd. Silfurberg er í eigu Friðriks Steins Kristjánssonar, stjórnarformanns lyfjavers, og Ingibjargar Jónsdóttur.