Munnbitinn ehf., rekstraraðili Minigarðsins í Skútuvogi, tapaði 20 milljónum króna eftir skatta. Til samanburðar hagnaðist félagið um 23 milljónir árið 2023, sem mátti rekja til tekjufærslu vegna sölu á vörumerkjum tengdum Barion.
Velta félagsins nam 510 milljónum króna árið 2024 samanborið við 474 milljónir árið áður. Rekstrargjöld jukust um 5,4% og námu 487 milljónum.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 22,7 milljónum, samanborið við 11,8 milljónum árið 2023. EBIT-afkoma félagsins var neikvæð um 117 milljónir.
Eingir Munnbitans voru bókfærðar á 242 milljónir króna í árslok 2024, en þar af var viðskiptavild upp á 34,9 milljónir. Eigið fé var neikvætt um 31,8 milljónir króna.
Sigmar Vilhjálmsson er aðaleigandi Munnbitans með 52,1% eignarhlut. Aðrir hluthafar eru Vilhelm Einarsson með 14,6% hlut, Hjálmar Vilhjálmsson með 12,4% hlut, Einar Bergur Ingvarsson með 12,4% hlut og Snorri Marteinsson með 8,5% hlut.