Fjármála- og efnahagsráðherra hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi til innleiðingar á tilskipun 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFID2) og reglugerð ESB 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFIR). Þetta kemur fram á vef Samráðsgátta r.
"Frumvarpið felur í sér ný heildarlög um markaði fyrir fjármálagerninga. Með því er lagt til að ákvæði tilskipunar 2014/65/ESB um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFID2) og reglugerð ESB 600/2014 um markaði fyrir fjármálagerninga (MiFIR) verði innleidd í íslenskan rétt," segir á vef Samráðsgáttar.
"Í frumvarpinu eru lagðar til umfangsmiklar breytingar hvað varðar þær kröfur sem gerðar eru til skipulegra markaða, markaðstorga fjármálagerninga og verðbréfafyrirtækja. Meðal annars eru gerðar auknar kröfur til gagnsæis, um fjárfestavernd og viðskiptahætti, til stjórnar, stjórnarhátta og almennt um skipulag verðbréfafyrirtækja og skipulegra markaða. Einnig er með frumvarpinu lagðar til ýmsar breytingar til að bregðast við þróun á markaði og tækninýjungum síðan að tilskipun 2004/39/EB (MiFID1) var innleidd í íslenskan rétt með lögum um verðbréfaviðskipti, nr. 108/2007, lögum um kauphallir 110/2007, og breytingum á lögum um fjármálafyrirtæki, nr. 161/2002."
Fólk getur sent inn umsóknir um frumvarpið en frestur til að senda inn umsagnir rennur út 9. september næstkomandi.