Ákveðið hefur verið að íslenskt sendiráð verði stofnsett í Varsjá í Póllandi síðar á þessu ári. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra kynnti tillögu þess efnis á fundi ríkisstjórnarinnar síðastliðinn föstudag og kynnti utanríkismálanefnd málið í morgun. Utanríkisráðuneytið greinir frá þessu í fréttatilkynningu .

Í tilkynningunni segir að utanríkiðsráðherra hafi átt fund í hádeginu með Gerard Sławomir Pokruszyński, sendiherra Póllands á Íslandi, þar sem honum var greint frá áformunum. Í tillögunni sé jafnframt lagt til að fyrirsvar vegna Litáen, auk Úkraínu og Belarús, verði fært til hinnar nýju sendiskrifstofu.

„Pólitísk, efnahagsleg og menningarleg samskipti Íslands og Póllands hafa aukist verulega á undanförnum árum. Þá á sívaxandi fjöldi Íslendinga uppruna sinn að rekja til Póllands. Hagsmunir landanna fara saman í mikilvægum málaflokkum, svo sem öryggis- og varnamálum. Þá hafa aukin samskipti landanna, ekki síst vegna fjölda Pólverja sem eru búsettir á Íslandi, eflt viðskipta- og menningartengsl,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Pólsk stjórnvöld hafa starfrækt sendiskrifstofu í Reykjavík frá 2008, fyrst með aðalræðisskrifstofu og frá 2013 sem fullgilt sendiráð.

„Með opnun sendiskrifstofu Íslands í Varsjá kemst loks á nauðsynleg gagnkvæmni í stjórnmálasamband ríkjanna og það er ánægjulegt að geta stigið það skref og undirstrikað hversu verðmæt vinátta þjóðanna er fyrir okkur Íslendinga. Pólska sendiráðið í Reykjavík hefur sinnt mikilvægri þjónustu við þann stóra hóp Pólverja sem býr á Íslandi. Íslenskt sendiráð í Varsjá getur að sama skapi veitt íslenskum ríkisborgurum og Pólverjum með náin tengsl við Ísland þjónustu og um leið greitt götu íslenskra fyrirtækja á þessum slóðum og gætt íslenskra hagsmuna, til dæmis á vettvangi Uppbyggingarsjóðs EES," er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.

Gert er ráð fyrir fyrir að sendiráð Íslands í Varsjá verði opnað í haust og yrði það þar með 27. sendiskrifstofa Íslands erlendis.