Veitingastöðum Eldsmiðjunnar á Laugarvegi og á Bragagötu hefur verið lokað. Eldsmiðjan er einn elsti pítsastaður á landinu en fyrsti staðurinn opnaði dyr sínar árið 1986. Frá þessu er greint á vef Fréttablaðsins .

Staðurinn á Suðurlandsbraut er því eini staðurinn sem enn er í fullum rekstri. Eldsmiðjan á Dalvegi í Kópavogi var lokað fyrr á þessu ári.

Jóhann Örn Þórarinsson, einn eiganda Gleðipinna segir ástæðuna fyrir lokun staðanna í miðbæ Reykjavíkur mega rekja til þess ástands sem skapast hefur vegna COVID-19.

„Þetta eru staðir sem voru báðir að fá mikið af ferðamönnum og lifðu að miklu leyti á ferðaþjónustunni. Við erum að meta stöðuna á Bragagötunni en vonumst til að geta opnað aftur þegar við sjáum erlenda ferðamenn koma aftur til landsins. Staðnum á Laugarvegi hefur verið lokað, nýr aðili er tekinn við húsnæðinu og hann er búinn að opna annan stað," segir Jóhann Örn í samtali við Fréttablaðið.