Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, var með 4,7 milljónir í mánaðarlaun í fyrra samkvæmt Tekjublaði Frjálsrar verslunar.
Aðrir fyrrum forsetar líkt og Guðni Th. Jóhannesson og Vigdís Finnbogadóttir voru með töluvert lægri laun í fyrra. Guðni Th. var með tæpar 3,7 milljónir á mánuði á meðan Vigdís var með tæpar 3,2 milljónir.
Jens Garðar Helgason, alþingismaður og fyrrum aðstoðarforstjóri Kaldvíkur, var tekjuhæstur meðal þingmanna en hann var með um 2,8 milljónir í mánaðarlaun í fyrra.
Hægt er að lesa meira um laun alþingismanna, ráðherra og forseta Íslands í Tekjublaði Frjálsrar verslunar.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.
Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindum vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.