Aðalsteinn Þorsteinsson hefur verið settur ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins frá 1. maí til og með 31. ágúst 2024. Það gerist eftir að Hermann Sæmundsson flyst í embætti ráðuneytisstjóra fjármála- og efnahagsráðuneytisins, að beiðni fjármála- og efnahagsráðherra.

Aðalsteinn hefur starfað sem skrifstofustjóri sveitarfélaga og byggðamála frá því í júní 2022. Þá hefur Aðalsteinn starfað sem forstjóri Byggðastofnunar frá árinu 2002.

Hann starfaði einnig tímabundið sem forstjóri Þjóðskrár Íslands árið 2022 en Aðalsteinn er lögfræðingur að mennt og lauk embættisprófi frá Lagadeild Háskóla Íslands árið 1993. Hann hefur jafnframt lokið námi í opinberi stjórnsýslu fyrir stjórnendur í opinberum rekstri frá sama skóla.

Guðni Geir settur skrifstofustjóri sveitarfélaga og byggðamála

Guðni Geir Einarsson verður settur skrifstofustjóri sveitarfélaga og byggðamála frá 1. maí til og með 31. ágúst 2024. Guðni Geir hefur starfað sem forstöðumaður Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og sem staðgengill skrifstofustjóra á skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála.

Þá hefur Guðni Geir starfað við Stjórnarráð Íslands með hléum frá árinu 2002 og lengst af við störf tengd Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Hann er stjórnmálafræðingur að mennt og lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1992 og meistaraprófi frá Kaupmannahafnarháskóla í stjórnmálafræði árið 2001.