Fossar fjárfestingarbanki hefur ráðið tvo nýja starfsmenn á svið fyrirtækjaráðgjafar bankans. Ástrós Björk Viðarsdóttir er nýr verkefnastjóri og Arnór Brynjarsson sérfræðingur.

Ástrós Björk Viðarsdóttir býr að yfir tuttugu ára reynslu á fjármálamarkaði, aðallega í fyrirtækjaráðgjöf þar sem hún hefur stýrt og tekið þátt í fjölmörgum veigamiklum verkefnum í íslensku atvinnulífi. Hún hefur einnig reynslu sem fjármálastjóri og framkvæmdastjóri, meðal annars sem fjármálastjóri fasteignafélagsins Íþöku.

Á árunum 2004 til 2013 starfaði Ástrós í Landsbankanum, fyrst við greiningu á fyrirtækjum og efnahagsmálum en síðar í fyrirtækjaráðgjöf. 2013 færði hún sig yfir í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka og starfaði þar til 2021.

Ástrós er með grunn og framhaldsmenntun í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík auk þess að hafa lokið námi í verðbréfaviðskiptum.

Arnór Brynjarsson kemur til Fossa frá KPMG í Kaupmannahöfn þar sem hann starfaði við fyrirtækjaráðgjöf á árunum 2022-2025. Þar áður starfaði hann sem greinandi hjá Copenhagen Offshore Partners, á fjármálasviði Arion Banka og sem dæmatímakennari við Háskólann í Reykjavík.

Arnór er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavik og M.Sc. gráðu í fjármálum frá Copenhagen Business School. Þá hefur hann lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.

„Við bjóðum Ástrós og Arnór hjartanlega velkomin til starfa. Hjá Fossum bætast þau í reynslumikinn og samheldinn hóp starfsfólks, sem einbeitir sér í að veita faglega og framúrskarandi fjármálaþjónustu. Við hlökkum til samstarfsins við þau,“ segir Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri Fossa fjárfestingarbanka.