Kristín Hildur Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Frama. Hún hefur þegar hafið störf og mun leiða uppbyggingu félagsins og styðja við vöxt þess með áherslu á gerð og miðlun námsefnis.

Frami var stofnaður árið 2019 og býður í dag upp á yfir 30 námskeið og 400 fyrirlestra frá fjölbreyttum hópi fólks. Allt efnið er aðgengilegt á netinu þar sem nemendur geta lokið námskeiðum á þeim hraða sem þeim hentar.

Hún kemur til Frama frá Íslandsbanka þar sem hún starfaði sem fræðslustjóri bankans, en leiddi áður vöruþróun fyrir ungt fólk og fjárfestingar. Áður starfaði hún hjá Deloitte á sviði viðskiptalausna og hjá Eimskipum í fjárstýringu.

„Við erum afar spennt að fá Kristínu Hildi til liðs við okkur. Hún býr yfir dýrmætri reynslu og frumkvöðlakrafti sem mun koma sér vel í sókn Frama á sviði fræðslu hérlendis,“ segir Stefán Jökull Stefánsson, stjórnarformaður Frama.

Kristín Hildur er með BS-gráðu í hagfræði og MS-gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands. Hún er einnig meðeigandi Fortuna Invest, fræðsluvettvangs sem miðar að því að efla fjármálalæsi og þátttöku á hlutabréfamarkaði, og meðhöfundur bókarinnar Fjárfestingar, sem kom út árið 2021.

„Ég er þakklát fyrir traustið að fá að leiða Frama og vinna að því að hjálpa fleirum að bæta við sig nýrri þekkingu og færni. Fræðslu er víða að finna og okkar markmið er að útbúa og miðla henni á aðgengilegan, lifandi og nútímalegan hátt,“ segir Kristín Hildur.