Borgarfyrirtækið Ljósleiðarinn, sem áður hét Gagnaveita Reykjavíkur, var rekið með 273 milljóna króna hagnaði árið 2021, en árið áður nam hagnaður félagsins 312 milljónum króna. Rekstrartekjur voru 3,4 milljarðar króna og jukust um 9,1% frá árinu 2020. Tekjuvöxturinn frá 2018 nemur 28%. Þetta kemur fram í nýútkomnum ársreikningi félagsins.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 2,4 milljörðum króna á síðasta ári, en til samanburðar nam EBITDA 2,2 milljörðum króna árið 2020. Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 1,2 milljörðum króna og jókst lítillega frá fyrra ári.
Eignir námu 29,5 milljörðum króna, skuldir 18,2 milljörðum og eigið fé 11,4 milljörðum í lok síðasta árs.
„Græn fjármögnun fyrirtækisins, sem hófst á árinu 2021, skapar því nýjan og traustan grundvöll til vaxtar í gerbreyttu umhverfi", segir Erling Freyr Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ljósleiðarans, í fréttatilkynningu.
„Eftir að ljósleiðaratengingu heimila á höfuðborgarsvæðinu lauk, árið 2018, hefur vöxtur Ljósleiðarans einkum verið tvíþættur; annars vegar eru ný sveitarfélög að bætast við og hins vegar er áhersla lögð á að bjóða fyrirtækjum í þeim sveitarfélögum sem Ljósleiðarinn þjónar nú þegar öflugar fjarskiptatengingar,“ segir í fréttatilkynningu Ljósleiðarans.
Fyrrnefndur Erling Freyr segir í tilkynningu að á árinu 2021 hafi orðið einhverjar mestu breytingar á íslenskum fjarskiptamarkaði um áratugaskeið. „Það er kominn gríðarlegur kraftur í markaðinn og því mikilvægt að nýta þennan kraft til að ljúka því markmiði sem stjórnvöld hafa sett um að klára ljósleiðaravæðingu landsins og tryggja þannig að landsmenn allir hafi val um samkeppni á öruggum háhraðatengingum til að tryggja nútíma lífsgæði og samkeppnishæfni.," segir Erling Freyr.
Hann segir Ljósleiðarann halda sínu striki við frekari uppbyggingu. „Það eru ennþá um 20.000 heimili í landinu sem ekki hafa kost á ljósleiðara," segir Erling Freyr. „Við munum halda ótrauð áfram að veita þessum umhverfisvænu lífsgæðum víðar um landið," bætir hann við.
Er jafnframt sagt frá því að á árinu 2021 hafi Ljósleiðarinn hafið útgáfu grænna skuldabréfa, sem skráð verði á markað á næstunni. Erling segir þetta hafa verið heilladrjúgt skref fyrir fyrirtækið.
„Við erum að lækka fjármagnskostnaðinn talsvert, sem skiptir miklu máli nú þegar við þurfum að taka stórt skref í uppbyggingu okkar ljósleiðarakerfis. Til þess að geta tekið fullan þátt á þessum samkeppnismarkaði sem nú hefur tekið talsverðum breytingum, þurfum við nýjan streng um landið. Ég hef kallað það nýjan landshring, enda Nato-þráðurinn kominn til ára sinna," segir Erling Freyr. „Ég held að framtíðarsýn flestra á fjarskiptin í landinu sé svipuð," bætir hann við. „Öflugar tengingar sem í senn tryggja þjóðaröryggi landsins, aukið fjarskiptaöryggi þar sem öll njóta ljósleiðara og tryggja neytendum öryggi um að heiðarleg samkeppni muni ríkja á fjarskiptamarkaði."