Sveitarfélagið Norðurþing og bresk-norska félagið GIGA-42 Ltd. hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu gagnavers á iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík. Greint er frá þessu á heimasíðu sveitarfélagsins.
Miðað er við að framkvæmdir hefjist á fyrri hluta árs 2026 og áætlað að um 100 einstaklingar komi að byggingu versins, hönnun og skipulagi framkvæmda.
Um er að ræða fyrsta fasa á gervigreindarveri á 4,3 hektara lóð með 50 MW raforkuþörf en GIGA-42 þarf að semja við Landsvirkjun um afhendingu rafmagns til verkefnisins.
„Það eru stækkunarmöguleikar á verkefninu fáist meiri orka enda ljóst að eftirspurn eftir reikniafli ofurtölva og gagnageymslu mun aukast á næstu árum með auknum notum gervigreindar í samfélaginu.“
Þegar uppbyggingu fyrsta fasa gagnaversins er lokið er gert ráð fyrir um 50 til 80 varanlegum störfum á tæknisviði; rafmagnsverkfræði, rafvirkjun, vélaverkfræði, kælitækni auk verkstjórnar, rekstrartækni, kerfisfræði og almennra starfa.
„Ísland getur orðið miðpunktur gervigreindarlausna. Kostir uppbyggingar gagnavers á Bakka er nálægð við spennivirki frá Þeistareykjum og þegar skipulagt iðnaðarsvæði. Samfélagið á Húsavík er sterkt og sveitarstjórn er með skýra sýn á iðnaðaruppbyggingu í Norðurþingi og á iðnaðarsvæðinu á Bakka,“ segir í tilkynningunni.
Sveitarfélagið segir afleiðu frá gagnaverinu vera glatvarma sem geti nýst við frekari uppbyggingu á svæðinu, t.d. fyrir fiskeldi, gróðurhús eða aðra matvælastarfsemi.
Sveitarstjórn Norðurþings bókaði á síðasta fundi að iðnaðarsvæðið á Bakka er í einstakri stöðu til að sameina endurnýjanlega jarðvarmaorku með mikla rekstrarhagkvæmni í köldu loftslagi og endurvinnslu á varma. Auk þess að gagnaver sem byggir á gervigreind hafi möguleika til að gagnast heimafólki, atvinnulífi og hagkerfi Íslendinga í heild.