Sjóðastýringarfyrirtækið Akta sjóðir hefur hlotið aukið starfsleyfi frá Fjármálaeftirliti Seðlabanka Íslands til að stunda eignastýringu, fjárfestingarráðgjöf ásamt móttöku og miðlun fyrirmæla varðandi fjármálagerninga. Akta var fyrir með starfsleyfi sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða og sem rekstrarfélag verðbréfasjóða.

Fyrir starfsemi Akta sjóða á sviði eignastýringar fer Örn Þorsteinsson en hann er jafnframt framkvæmdastjóri félagsins. Örn hefur starfað hjá Akta allt frá stofnun félagsins árið 2013. Með Erni á eignastýringarsviði starfa Helena Kristín Brynjólfsdóttir og Sigurður Kristján Sigurðsson. Þá verður Þórhallur Ásbjörnsson forstöðumaður sjóðastýringar.

„Eignastýring, ráðgjöf og móttaka og miðlun fyrirmæla varðandi fjármálagerninga er mikilvæg viðbót við sjóðastarfsemi Akta. Við munum áfram leggja megináherslu á að bjóða upp á gott úrval framúrskarandi sjóða en með þessum auknu starfsheimildum eykst geta félagsins til að veita sjóðfélögum þjónustu,“ segir Örn í tilkynningu á heimasíðu Akta.