Bjarni Benediktsson sigraði í formannskjöri í Sjálfstæðisflokknum. Niðurstaðan var tilkynnt rétt í þessu.

Bjarni fékk 1.010 atkvæði af 1.700 gildum atkvæðum. Alls voru greidd 1.712 atkvæði. Níu voru auð eða ógild og aðrir fengu þrjú atkvæði.

Guðlaugur Þór Þórðarson fékk 687 atkvæði. Bjarni fékk því 59,5% atkvæða en Guðlaugur Þór 40,4%.