Kaffivagninn á Grandagarði opnar í dag fyrir gesti og gangandi eftir endurbætur, endurhönnun og endursköpun en til stóð að opna hann á ný í maí. Kaffivagninn opnaði árið 1935 og er elsti starfandi veitingastaður á Íslandi.

Axel Óskarsson, veitingamaður Kaffivagnsins, sagði á sínum tíma í samtali við Viðskiptablaðið að tilgangur breytinganna hafi verið að nútímavæða Kaffivagninn og auka aðgengi fyrir viðskiptavini.

Hann hefur rekið Kaffivagninn og veitingahúsið Öðling í golfskálanum Oddi ásamt eiginkonu sinni, Katrínu Ósk Aldan. Jóhann Jónsson, matreiðslumaður á Laugaási í yfir tvo áratugi, stendur einnig vaktina úti á Granda með hjónunum.

Í tilkynningu segir að búið sé að uppfæra og endurnýja vagninn að innan. Gamli andinn og sálin að innan sé þó enn til staðar þar sem eigendur líta á sögu Kaffivagnsins sem mikilvægan hluta af sögu Reykjavíkurborgar.

Gamli andinn og sálin að innan er enn til staðar.
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Kaffivagninn var stofnaður árið 1935 af Bjarna Kristjánssyni og var þá staðsettur á horni Pósthússtrætis og Tryggvagötu. Guðrún Ingólfsdóttir keypti vagninn af Bjarna í byrjun sjötta áratugar síðustu aldar en hann var þá á Grandagarði og komust mest 15 manns þar inn.

Fastagestir voru þá helst sjómenn og hafnarverkamenn sem mættu snemma, enda var Reykjavík á þessum tíma ein stærsta verstöð landsins. Árið 1975 komst Kaffivagninn í núverandi húsnæði sem nú hefur verið endurnýjað.

„Hér hafa kynslóðirnar mæst og alist upp hlið við hlið áratugum saman og það er mikill heiður að fá að taka þátt í að tryggja að svo verði áfram. Við höfum gert staðinn fallega upp, sett upp glæsilega og girnilega matseðla fyrir hádegi og kvöld og óvíða er útsýnið skemmtilegra að auki en einmitt héðan. Ég hlakka til að taka á móti gestum á Kaffivagninum og bjóða þeim í lystaukandi ferðalag,“ segir Axel Óskarsson, veitingamaður.