Hverfisbarinn ehf. hefur stefnt Coca Cola European Partners Ísland til greiðslu tæplega 8,7 milljóna króna. Bitbein málsins er hvaða áhrif COVID-19 faraldurinn á að hafa á gerða samninga, hvort þeir standi samkvæmt efni sínu eða hvort menn geti losnað undan skyldum samkvæmt þeim. Ljóst er að dómur í málinu gæti haft nokkur áhrif út fyrir efni sitt.

Í apríl 2016 gerðu fyrrverandi rekstraraðili Hverfisbarsins og Coca Cola, sem áður starfaði undir firmaheitinu Vífilfell, með sér samstarfssamning. Fól hann meðal annars í sér að Hverfisbarnum bar að taka þátt í ýmiss konar markaðskynningu og framsetningu á vegum drykkjarframleiðandans. Í staðinn skyldi veitingastaðurinn fá 7 milljónir króna, virðisaukaskattur ekki meðtalinn, og frívörur að ákveðinni upphæð. Gjalddagi þeirrar upphæðar er 10. maí ár hvert.

Í samningnum var meðal annars að finna svohljóðandi ákvæði: „Hvorugur samningsaðila skal teljast bótaskyldur né öðlast rétt til að rifta eða slíta samningi þessum vegna tafa eða annars konar vanefnda ef slíkar vanefndir eru afleiðing af verkföllum, styrjöldum, náttúruhamförum eða annars konar óviðráðanlegum atvikum (force majeure).“

Líkt og alkunna er náði SARSCoV-2 veiran hingað til lands undir lok febrúar þessa árs og neyðarstigi almannavarna var lýst yfir 6. mars. Stjórnvöld, að fengnum tillögum sóttvarnayfirvalda, gripu til ýmissa aðgerða til að hefta útbreiðslu faraldursins en meðal þeirra má nefna samkomutakmarkanir og reglu um að ávallt skyldu tveir metrar vera á milli manna. Þann 23. mars var meðal annars kveðið á um að skemmtistöðum og krám yrði gert skylt að hafa lokað og var það bann í gildi í rúma tvo mánuði. Eftir það máttu staðir hafa opið til klukkan 23.00.

Samkvæmt tilmælum yfirvalda skellti Hverfisbarinn í lás á fyrrgreindu tímabili en svo vill til að gjalddagi samkomulagsins lenti akkúrat á því tímabili. Í byrjun apríl leituðu forsvarsmenn barsins eftir því að upphæðin yrði greidd fyrir gjalddaga en því var hafnað. Síðasta dag aprílmánaðar gaf barinn út reikning fyrir upphæðinni en Coca Cola hefur hafnað greiðsluskyldu.

Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir Tölublöð , aðrir geta skráð sig í áskrift hér .