Sjóvá áætlar að afkoma samstæðunnar fyrir skatta á árinu 2023 verði á bilinu 5,0-5,3 milljarðar króna, samkvæmt drögum að uppgjöri fjórða ársfjórðungs. Til samanburðar hagnaðist Sjóvá um 3,2 milljarða fyrir skatta á árinu 2022.
Í tilkynningu til Kauphallarinnar kemur fram að vænt afkoma af vátryggingasamningum verði hærri en afkomuspá félagsins gerði ráð fyrir.
Afkoma fjárfestinga hjá Sjóvá á fjórða ársfjórðungi mun, samkvæmt drögum að uppgjöri, nema um 2,3-2,4 milljörðum og um 4,4-4,5 milljörðum á árinu 2023 í heild sinni. Áætlað er ávöxtun eignasafnsins á árinu 2023 hafi verið um 9%.
Hagstæðari tjónaþróun en hærri fjármagnsliðir
Sjóvá áætlar að afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta á fjórða ársfjórðungi 2023 verði á bilinu 600-700 milljónir króna og samsett hlutfall um 91,5% á fjórðungnum.
Af þessu leiði að afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta á árinu 2023 verði á bilinu 1,5-1,6 milljarðar króna og samsett hlutfall um 95%. Birtar horfur Sjóvár gerðu ráð fyrir að afkoma af vátryggingasamningum fyrir skatta yrði um 1,0-1,3 milljarðar og samsett hlutfall um 96-97% á árinu 2023.
Sjóvá segir að betri afkoma á fjórða ársfjórðungi 2023 sé aðallega tilkomin vegna hagstæðari tjónaþróunar en gert var ráð fyrir í horfum á tímabilinu. Fjármagnsliðir vátryggingasamninga hafi hins vegar verið nokkuð hærri á fjórða ársfjórðungi en undanfarna fjórðunga eða neikvæðir um 475 milljónir króna og á árinu í heild því neikvæðir um 900 milljónir.
Sjóvá mun kynna frekari upplýsingar um afkomu félagsins við birtingu ársuppgjörs þann 8. febrúar næstkomandi.
Tryggingafélagið áréttar að uppgjörið sé enn í vinnslu og endurskoðun ekki lokið. Afkomutölur kunni því að taka breytingum fram að birtingadegi.