Japanska jenið hefur ekki verið veikara gagnvart bandaríska dollaranum í tæplega 20 ár. Eftir að hafa fallið um tæplega hálft prósent í morgun hefur jenið veikst um tæplega 9% gagnvart dollaranum á einu ári.

Í umfjöllun Financial Times segir að laust taumhald peningastefnu Seðlabanka Japans á sama tíma og stærstu seðlabankar heims hafa hafið vaxtahækkunarferli hafi sett mikinn veikingarþrýsting á gjaldmiðilinn.

Japanski seðlabankinn ítrekaði nýlega að hann myndi áfram leggja sitt af mörkum til að halda ávöxtunarkröfunni á japanska skuldabréfamarkaðnum lágri. Jafnframt eru væntingar um að seðlabankinn hyggist halda stýrivöxtum lágum til skamms tíma.

Haruhiko Kuroda, seðlabankastjóri Japans, varaði við því í dag að vaxandi verðbólga sem skýrist af stórum hluta af verðhækkunum í innflutningi gæti hægt á japanska hagkerfinu. Fyrir vikið gæti seðlabankinn neyðst til að viðhalda lausri peningastefnu, að því er kemur fram í frétt Reuters .

Samkvæmt gögnum frá Seðlabanka Íslands hefur krónan ekki verið sterkari gagnvart japanska jeninu frá lok árs 2018. Gengi krónunnar gagnvart jeninu stendur nú í tæplega 1,024 krónum fyrir hvert jen.