Krónan hefur tekið höndum saman við íslenska nýsköpunarfyrirtækið Pikkoló um afhendingu netpantana í kældum afhendingarstöðvum Pikkoló á höfuðborgarsvæðinu.

Samstarfið gefur viðskiptavinum Krónunnar, sem panta í gegnum Snjallverslun, möguleika á að sækja pantanir sínar í afhendingarstöðvar Pikkoló allan sólarhringinn.

Stöðvarnar eru staðsettar í Vatnsmýri, Háaleiti og við Hlemm í Reykjavík, auk Hæðasmára í Kópavogi og hyggst Pikkoló opna fleiri slíkar stöðvar á næstunni með það að markmiði að fleiri geti nýtt sér þjónustu Pikkoló í sínu nærumhverfi.

„Við sjáum mikil tækifæri í samstarfinu við Pikkoló, sem hefur gjörbreytt leiknum með því að auðvelda neytendum að nálgast mat- og dagvöru í nærumhverfi sínu með snjallari og umhverfisvænni hætti,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

„Með þessu bætast við þjónustu okkar fjórar afhendingarstöðvar sem er frábært því við finnum að eftirspurnin eftir sveigjanleikanum sem í þessu felst er svo sannarlega til staðar. Það er okkar draumur að íbúar á landsbyggðinni fái einnig að njóta sömu þjónustu í framtíðinni og þar með fá betra aðgengi að matvöru á samkeppnishæfu verði.“

Að sögn Rögnu M. Guðmundsdóttur, annars stofnanda og framkvæmdastjóra Pikkoló, eru afhendingarstöðvar Pikkoló staðsettar með það í huga að auðvelda fólki að nálgast matarsendingar, svo sem við stærri vinnustaði og þétta íbúakjarna, og þannig spara fólki bílferð í matvörubúð á háannatíma.

„Krónan hefur verið í fararbroddi þegar kemur að notkun snjallra lausna til að þjónusta viðskiptavini sína enn betur og verður gaman að fylgjast með þróun samstarfsins og sjá hvort það leiði okkur út fyrir höfuðborgarsvæðið. Kerfi Pikkoló eru hönnuð með það í huga að lágmarka óþarfa dreifingu matvara með því að samnýta sendingar á stöðvarnar og á sama tíma leitast við að útrýma röðum og bið í verslunum,“ segir Ragna.

„Frá því að við opnuðum fyrstu afhendingarstöðina okkar við Grósku fyrir tveimur árum, hefur Pikkoló sparað þúsundum notenda sporin og bjóðum við því viðskiptavini Krónunnar velkomna í hóp ánægðra notenda Pikkoló‏“