Samtök atvinnulífsins boða til morgunverðarfundar í Hörpu þriðjudaginn 16. september í tilefni af endanlegri niðurstöðu dómstóls Evrópusambandsins í máli bresku verslunarkeðjunnar Iceland Foods Ltd. Dómstóllinn hafnaði kröfum fyrirtækisins um einkarétt á orðinu Iceland sem vörumerki innan ESB.

Á fundinum verður fjallað um áhrif málsins fyrir íslensk fyrirtæki og vörumerki landsins.

Sérstakur gestur er frumkvöðullinn og markaðssérfræðingurinn Gaute Høgh, stofnandi Co/PLUS, sem flytur fyrirlesturinn Afl upprunans. Þar ræðir hann hvernig fyrirtæki geta nýtt uppruna sinn og sérstöðu sem drifkraft í markaðssetningu og verðmætasköpun.

Gaute hefur áratuga reynslu af því að byggja upp öflug vörumerki og hefur unnið fyrir fyrirtæki á borð við Bang & Olufsen, Lego, Maersk og Norwegian, auk fjölda íslenskra fyrirtækja.

Einnig munu Brynhildur Georgsdóttir, forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Íslandsstofu, ásamt fulltrúum atvinnulífsins, fjalla um málareksturinn og helstu lærdóma af honum.

Fundurinn fer fram í Kaldalóni, Hörpu, kl. 9.00 til 10.00 þann 16. september.