Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, standa því áfram í 7,50%.

Allir nefndarmenn studdu þessa ákvörðun.

Verðbólga mældist 4% í júlí og lækkaði um 0,2 prósentur frá fyrri mánuði.

Í nýrri spá Seðlabankans er þó gert ráð fyrir að verðbólga aukist tímabundið á næstu mánuðum áður en hún taki að hjaðna að nýju á næsta ári. Bankinn bendir á að óvissa um verðbólguhorfur sé enn talsverð.

Í tilkynningu segir að hægt hafi á vexti innlendrar eftirspurnar í takt við þétt taumhald peningastefnunnar. Spennan í þjóðarbúinu hafi því minnkað, sem birtist meðal annars í hægari umsvifum á húsnæðis- og vinnumarkaði.

Samt sem áður sé enn nokkur þróttur í efnahagslífinu, laun hafi hækkað mikið og verðbólguvæntingar séu enn yfir markmiði bankans.

Engin skilyrði fyrir vaxtalækkun

Þrátt fyrir að verðbólga og verðbólguvæntingar hafi lækkað síðustu misseri er enn nokkur verðbólguþrýstingur í kerfinu. Bankinn telur því aðstæður ekki vera til staðar til að draga úr raunvaxtaaðhaldi. Ljóst sé að frekari vaxtalækkanir séu háðar því að verðbólga nálgist 2,5% markmið bankans.

„Enn virðist þó vera nokkur þróttur í efnahagsumsvifum, laun hafa hækkað mikið og verðbólguvæntingar mælast enn yfir markmiði.

Þótt verðbólga hafi hjaðnað og verðbólguvæntingar lækkað síðustu misseri er enn nokkur verðbólguþrýstingur til staðar. Þær aðstæður hafa því ekki skapast að hægt sé að slaka á núverandi raunvaxtaaðhaldi peningastefnunnar. Ljóst er að frekari skref til lækkunar vaxta eru háð því að verðbólga færist nær 2½% markmiði bankans,“ segir í yfirlýsingu nefndarinnar.

Samkvæmt ákvörðun peningastefnunefndarinnar verða vextir sem hér segir:

  • Daglán: 9,25%
  • Lán gegn veði til 7 daga: 8,25%
  • Innlán bundin í 7 daga: 7,50%
  • Viðskiptareikningar: 7,25%