Nýsköpunarfyrirtækið Taktikal hefur ráðið til sín tíu nýja starfsmenn í viðskiptaþróun, hugbúnaðarþróun og markaðsmálum og hefur félagið því tvöfaldað fjölda starfsfólks. Í fréttatilkynningu segir að fjölgun starfsfólks sé að mestu tilkominn vegna sóknar Taktikal á erlenda markaði en félagið lauk nýverið 260 milljón króna fjármögnun frá vísisjóðnum Brunni Ventures til vöruþróunar og sóknar á erlenda markaði.
Björt Baldvinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri árangursdrifinna viðskiptatengsla (e. customer success manager). Sem framkvæmdastjóri viðskiptatengsla sér Björt um framlínuþjónustu og þarfagreiningu hjá viðskiptavinum Taktikal. Björt hefur áður unnið fjölbreytt störf tengd samskiptum, verkefnastjórnun og viðskiptatengslum m.a. hjá Íslandsstofu, Azazo og Star-Odda. Björt er með BA í Evrópufræðum frá Háskólanum í Haag í Hollandi og MA í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands.
Sunna Halla Einarsdóttir er nýr fjármálastjóri Takitkal. Hún kemur til félagsins frá Icelandic Startups (Klak) þar sem hún starfaði sem fjármálastjóri ásamt verkefnastjórn fyrir Framvís – Samtök Vísifjárfesta. Sunna er með BSc gráðu í viðskiptafræði og MA gráðu í endurskoðun og reikningsskilum frá Háskóla Íslands.
Tinna Hallbergsdótti r hefur gengið til liðs við Taktikal sem gæða- og öryggisstjóri. Tinna kemur frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands (NTI) þar sem hún starfaði sem þjónustustjóri og sá meðal annars um innleiðingu á GDPR og ISO stöðlum ásamt því að stýra innleiðingarverkefnum í upplýsingatækni. Tinna er með MSc gráðu í Strategic Management frá Háskóla Íslands.
Whitney Highum hefur verið ráðin sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu. Whitney hefur áður starfað sem sérfræðingur í vöru- og markaðsþróun fyrir alþjóðleg skýjalausnarfyrirtæki í Evrópu og Bandaríkjunum. Whitney er með MSc gráðu í Communication Science frá University of Amsterdam.
Arthur Myhre Scott hefur gengið til liðs við Taktikal forstöðumaður stafrænnar þróunar. Arthur kemur til Taktikal með áratuga reynslu í upplifunarhönnun fyrir stafrænar vörur og þjónustu fyrir mörg af helstu stórfyrirtækjum á Norðurlöndum og í Bandaríkjunum. Arthur hefur áður starfað sem yfirráðgjafi hjá Itera í Noregi og sem prófessor í hönnun við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Richard Saedt hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptaþróunar. Richard gengur til liðs við Taktikal með yfir 25 ára reynslu af sölu og viðskiptaþróun. Richard lauk meistaranámi í stjórnunarfræði við háskólann í Nijmegen í Holland og hefur áður starfað í sölu- og viðskiptaþróun fyrir nokkra af stærstu áhættustýringarmiðlurum á alþjóðavísu þ.á.m. Marsh, Experian and Aon Risk Solutions
Taktikal hefur auk þess fjölgað starfsfólki í vöruþróun á hugbúnaðarsviði. Þar hefur Taktikal ráðið inn þau Ingólf Dan Þórisson, Hörð Smára Jóhannesson, Maríu Mjöll Hrafnsdóttur og Erling Davíð Erlingsson sem sérfræðinga í hugbúnaðarþróun.
Valur Þór Gunnarsson, framkvæmdastjóri Taktikal:
„Það er gríðarlega mikill fengur fyrir okkur hjá Taktikal að fá inn nýtt fólk með mikla reynslu sem styður við vöxt félagsins og stafræna vegferð viðskiptavina okkar. Í þekkingariðnaði er mikil samkeppni um hæft starfsfólk og við höfum verið einstaklega heppin að fá gott fólk með í okkar vegferð.”