Reykjavíkurborg hyggst ekki hækka gjaldskrár vegna þjónustu við börn og barnafjölskyldur um meira en 3,5% á næsta ári, að því er segir í tilkynningu borgarinnar. Tillaga þess efnis var samþykkt í borgarráði í dag en tilgangurinn er sagður vera að stuðla að lægri verðbólgu og langtíma kjarasamningum á hófsömum nótum.

Haft er eftir Einari Þorsteinssyni, formanni borgarráðs, að borgin sé tilbúin til þess að draga úr boðuðum gjaldskrárhækkunum, að því gefnu að aðilar vinnumarkaðar nái saman um hóflegar launahækkanir.

Borgin segir að forsendur tillögunnar séu samflot og samstaða Reykjavíkurborgar, ríkis og annarra sveitarfélaga, verkalýðshreyfingar og aðila á vinnumarkaði um samstillta kjarasamninga sem hafi það að meginmarkmiði að stuðla að kaupmætti og vinna gegn verðbólgu.

„Samfélagið á mikið undir því að standa vörð um kjör fólks og ráða niðurlögum verðbólgunnar,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

„Lykillinn að því er að ná farsælum kjarasamningum til lengri tíma. Ég átti gott samtal við forseta Alþýðusamband Íslands í byrjun vikunnar, sem hvatti til þess að afstaða borgarinnar til þess að stilla gjaldskrárbreytingum í hóf lægi skýrt fyrir. Það er staðfest með þessari samþykkt borgarráðs og ég er ánægður með að algjör samstaða var um þessa afstöðu, þvert á flokka.“