Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,15% á milli júlí og ágúst hefur nú hækkað um 3,8% á síðastliðnum tólf mánuðum samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Ársverðbólgan dróst saman um 0,2 prósentur frá fyrri mánuði þegar hún mældist 4,0%.
Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,38% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,8% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis dróst saman um 0,2 prósentustig milli mánaða en hún mældist 3,0% í júlí.
Í tilkynningu Hagstofunnar segir að húsgögn og heimilisbúnaður hafi hækkað um 6,6% milli mánaða en flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 12,0%.
Greining Íslandsbanka hafði spáð því að verðbólgan myndi aukast um 0,1 prósentu og mælast 4,1% í ágúst en hagfræðideild Landsbankans spáði óbreyttri verðbólgu í 4,0%. Íslandsbanki spáði því að vísitala neysluverðs myndi hækka um 0,2% milli mánaða en spá Landsbankans gerði ráð fyrir 0,07% hækkun.
Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er 8. október næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans hélt stýrivöxtum óbreyttum í 7,5% í síðustu viku. Greiningaraðilar spá því að stýrivextir muni ekki lækka frekar í ár.
Peningastefnunefndin hefur að undanförnu gefið skýrt til kynna að næstu vaxtaákvarðanir muni ráðast af því hvort verðbólgan haldi áfram að hjaðna.