Á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir endurskoðendur er Samúel Orri Samúelsson hjá Alvotech efstur með 5,59 milljónir króna í reiknuð mánaðarlaun miðað við greitt útsvar.

Auk hans eru þrír aðrir með yfir 3 milljónir króna í mánaðarlaun. Sigurður Sigurgeirsson hjá Landsbankanum er í öðru sæti með 3,39 milljónir króna.

Matthías Þór Óskarsson, löggiltur endurskoðandi og meðeigandi KPMG , er í þriðja sæti listans með 3,17 milljónir króna. Þar á eftir kemur Margrét G Flóvenz, löggiltur endurskoðandi.

Þess má geta að Guðmundur Björgvin Helgason ríkisendurskoðandi, sem er ekki löggiltur endurskoðandi, var með 2,2 milljónir króna í mánaðarlaun í fyrra. Fimmtán einstaklingar á listanum yfir endurskoðendur voru launahærri en ríkisendurskoðandi í fyrra.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna út­gáfu Tekju­blaðsins er nauð­syn­legt að árétta að um er að ræða útsvars­skyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endur­spegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur auka­störf og hlunnindi vegna kaupréttar­samninga. Miðað er við útsvars­stofn sam­kvæmt álagningar­skrá. Í tölunum eru ekki fjár­magns­tekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hluta­bréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið ein­skiptis­greiðsla vegna út­tektar á sér­eigna­sparnaði hjá líf­eyris­sjóði.