Birgir Jónsson, sem lét af störfum sem forstjóri Play í apríl 2024, var launahæsti forstjóri stærstu flugfélaga landsins árið 2024. Samkvæmt útsvarsskyldum tekjum Birgis var hann með ríflega 6,1 milljón á mánuði í tekjur. Einar Örn Ólafsson, núverandi forstjóri Play, var með tæplega 4,2 milljónir á mánuði.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér og fá það sent heim.

Næst launahæsti forstjórinn var Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta, en hann var með tæplega 5,3 milljónir á mánuði. Loks var Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair með rétt rúmlega 5,2 milljónir á mánuði.

Af stjórnarformönnum flugfélaganna þriggja var Hannes Hilmarsson, stjórnarformaður Air Atlanta, launahæstur en hann var með tæplega 5,3 milljónir á mánuði í tekjur. Sigurður Kári Kristjánsson, stjórnarformaður Play, var með ríflega 2,2 milljónir á mánuði og Guðmundur Hafsteinsson, stjórnarformaður Icelandair, með tæplega 1,2 milljónir.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki verður blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.