Björgvin Njáll Ingólfsson, framkvæmdastjóri þjónustusviðs Toyota, er launahæstur á lista yfir laun verkfræðinga og annarra sérfræðinga í Tekjublaði Frjálsrar verslunar. Launatekjur hans á síðasta ári námu 5,27 milljónum króna á mánuði í fyrra.
Hreinn Gústavsson, tæknistjóri Dropp, er í öðru sæti á listanum með 5,18 milljónir króna á mánuði.
Hákon Guðbjartsson, upplýsingatæknistjóri Genuity Sciecnce situr í þriðja sæti listans með 4,60 milljónir króna á mánuði. Þar á eftir kemur Jón Kristjánsson byggingaverkfræðingur.
Sigurður R Ragnarsson, verkfræðingur og stjórnarformaður Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) er í níunda sæti listans með 3,68 milljónir króna á mánuði.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.
Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.