Sesselja Sigurborg Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjavísinda hjá Alvotech og fyrrverandi prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands, er launahæst á lista yfir laun skólafólks. Meðallaunatekjur hennar á síðasta ári námu 10,4 milljónum króna á mánuði.

Í öðru sæti listans er Bjarni Elvar Pétursson, starfandi deildarforseti tannlæknadeildar HÍ og tannlæknir hjá tannlæknastofunni Valhöll. Hann var með tæpar 6,0 milljónir króna í mánaðarlaun í fyrra.

Alls voru 32 einstaklingar á lista yfir skólafólk í Tekjublaði Frjálsrar verslunar með yfir 2 milljónir króna í reiknuð mánaðarlaun út frá greiddu útsvari.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, er í sjötta sæti listans með tæpar 3,0 milljónir króna í mánaðarlaun.

Jón Atli Benediktsson, sem lét af embætti rektors Háskóla Íslands í ár, er í 26. sæti með tæplega 2,2 milljónir króna í mánaðartekjur. Eftirmaður hans, Silja Bára Ómarsdóttir, prófessor í alþjóðasamskiptum við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, var með tæplega 1,7 milljónir króna í mánaðarlaun.

Eyjólfur Guðmundsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri var með tæplega 1,9 milljónir króna í mánaðartekjur.

Hægt er að kaupa Tekjublaðið hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.

Vegna út­gáfu Tekju­blaðsins er nauð­syn­legt að árétta að um er að ræða útsvars­skyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endur­spegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur auka­störf og hlunnindi vegna kaupréttar­samninga. Miðað er við útsvars­stofn sam­kvæmt álagningar­skrá. Í tölunum eru ekki fjár­magns­tekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hluta­bréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið ein­skiptis­greiðsla vegna út­tektar á sér­eigna­sparnaði hjá líf­eyris­sjóði.