Brett Albert Vigelskas, framkvæmdastjóri Costco á Íslandi, er tekjuhæstur forstjóra stóru matvörukeðjanna á Íslandi. Í fyrra námu mánaðartekjur hans að meðaltali 6,9 milljónum króna, sem eru 25% lægri tekjur en hann hafði í fyrra en þá námu mánaðartekjur hans 9,2 milljónum. Árið 2022 var Brett Albert með 13,5 milljónir á mánuði þannig að tekjur forstjóra Costco á Íslandi hafa lækkað um nærri 50% síðan þá.
Næstur á eftir forstjóra Costco er Finnur Oddsson, forstjóri Haga, sem rekur Hagkaup og Bónus. Finnur var með tæplega 6,4 milljónir á mánuði í tekjur á síðasta ári, sem er 600 þúsund krónum meira en árið 2023.
Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, sem rekur Krónuna, var með 6,1 milljón króna í mánaðartekjur í fyrra samanborið við 5,7 milljónir árið 2023. Árið 2022 voru tekjurnar 4,1 milljón króna.
Í þriðja sæti listans er Gunnar Egill Sigurðsson, forstjóri Samkaup, sem rekur Nettó, Krambúðina, Kjörbúðina og Iceland. Tekjur hans námu 4,4 milljónum króna í fyrra samanborið við 3,7 milljónir árið 2023. Gunnar Egill hætti sem forstjóri Samkaupa í maí síðastliðnum. Samkaup eru nú í eigu dótturfélaga Skeljar, sem er m.a. móðurfélag Prís.
Í fimmta sæti listans er svo Gréta María Grétarsdóttir, fyrrverandi forstjóri Heimkaupa, sem tók við stjórn verslunarinnar Prís fyrir ári síðan. Tekjur Grétu Maríu námu 4,1 milljón króna á síðasta ári en þær voru 5,5 milljónir árið 2023.
Vegna útgáfu Tekjublaðsins er nauðsynlegt að árétta að um er að ræða útsvarsskyldar tekjur á árinu 2024 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Hafa verður í huga að inni í tekjum getur verið einskiptisgreiðsla vegna úttektar á séreignasparnaði hjá lífeyrissjóði.
Hægt er að kaupa Tekjublaðið í forsölu hér. Að auki er blaðið til sölu í öllum helstu verslunum landsins.