Þeir sem eiga um 9,6 milljarða króna á bankabók geta keypt hraðskreiðustu lúxussnekkju heims. Snekkjan er í eigu þýska milljarðamæringsins Guido Krass en hann biður um 85 milljónir dala fyrir snekkjuna.

Snekkjan er kölluð Silver Zwei og var sérstaklega hönnuð að ósk Krass. Hún þykir umhverfisvæn miðað við stærð snekkjunnar. Meðal þess sem er um borð er þyrlupallur, gufubað, heitur pottur og bíósalur sem er staðsett utandyra.

Mögulegir kaupendur og aðrir geta skoðað myndir hér .