Knattspyrnuhlaðvarpið Dr. Football varð nýverið fimm ára og af því tilefni bauð Hjörvar Hafliðason, stofnandi, þáttarstjórnandi og eigandi hlaðvarpsins, til afmælisfagnaðar á Café Catalínu í Hamraborg síðastliðinn föstudag.

Húsfyllir var á Catalínu og var öllum leikmönnum boðið, „alveg sama hvort þeir séu góðir, slakir, áhugaverðir, magnaðir, vanmetnir, metnaðarfullir, sérstakir eða spes. Húsið er opið leikmönnum sama hvar þeir standa í leiknum,“ eins og sagði í afmælisboði hins óttalausa leiðtoga Dr. Football safnaðarins.

Spéfuglinn Sóli Hólm hélt uppi fjörinu á sinn einstaka hátt, ásamt því sem Hjörvar ávarpaði söfnuð sinn við mikinn fögnuð viðstaddra og kynnti um leið nýja ásýnd Dr. Football.

Þá steig landsþekkt tónlistarfólk á stokk en þar á meðal var Háski, Joe Fraizer, sem Doktorinn lýsir sem hinum eina sanna miðbæjarlistamanni Kópavogs og ClubDub.

Hér að neðan má nálgast myndaveislu frá fimm ára afmæli stærsta fjölmiðils Kópavogs.

Arsenalmaðurinn Jón Kári Eldon stillti sér upp ásamt Doktornum.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Grínistinn, eftirherman og formaður Liverpool-samfélagsins á Íslandi, Sóli Hólm, hélt uppi fjörinu - grófari en nokkru sinni fyrr.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Brynjar Barkarson og Aron Kristinn Jónasson, sem saman mynda hljómsveitina ClubDub, mættu og tóku sína helstu slagara.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Rapparinn Joe Fraizer lét sig ekki vanta.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
KR-ingurinn Sigurður Helgason varð fyrsti maðurinn til að hljóta heiðursverðlaun Dr. Football. Siggi á langan þjálfunarferil að baki og er hafsjór af fróðleik um knattspyrnu.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Sigurjón Jónsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherrans Willums Þórs Þórssonar, ásamt Viktori Unnari Illugasyni, fyrrverandi atvinnumanni í knattspyrnu og núverandi knattspyrnuþjálfara.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Dr. Football er vinkona Framsóknarflokksins.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Gunnar Birgisson, Sigurður Gísli Bond Snorrason, Sigurjón Jónsson, Ingólfur Sigurðsson og Arnar Sveinn Geirsson hafa í ófá skipti mætt sem gestastjórnendur í Dr. Football. Þeir skemmtu sér konunglega í afmælinu.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Stemningin var rafmögnuð er Joe Fraizer steig á stokk.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Strákarnir í ClubDub stilltu sér upp ásamt Dr. Football, sem var að vonum himinlifandi með frammistöðu hljómsveitarinnar.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Hrafnkell Freyr Ágústsson, Jón Kári Eldon og Daníel Ólafsson eru hlustendum Dr. Football velkunnir.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Sóli Hólm endaði erindi sitt á að skála fyrir Dr. Football.
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Afmælisgestir sem klikkuðu á að kíkja í klippingu fyrir afmælishátíðina þurftu ekki að örvænta því Doktorinn sá til þess að þeir gætu fengið ferskt „fade“ á staðnum.
© Aðsend mynd (AÐSEND)