Toyota mun setja nýjan bíl Yaris Cross á markað á næsta ári en sala á bílnum mun hefjast hér á landi seinni hluta næsta árs. Yaris Cross sameinar kosti jepplings og þægilegs borgarbíls. Segja má að Yaris Cross sé stór smábíll því innanrýmið er ríkulegt. Bíllinn situr frekar hátt og er því þægilegur í allri umgengni.

Yaris Cross sameinar margt af því sem einkennt hefur Toyota á liðnum árum. Með tilkomu RAV4 varð Toyota fyrsti bílaframleiðandinn til að setja jeppling á markað. Toyota hefur alltaf séð vel fyrir þörfum þeirra sem vilja smærri fólksbíla og Toyota ruddi brautina fyrir Hybridtæknina sem reynst hefur vel í meira en tvo áratugi.

Yaris Cross er búinn 1.5 lítra Atkinson vél sem studd er fjórðu kynslóðar Hybridkerfi. CO2 losun bílsins er undir 90 g/km í framhjóladrifnu útgáfunni og undir 100 g/km í fjórhjóladrifna bílnum samkvæmt NEDC. Bíllinn er í boði bæði með framhjóla- og fjórhjóladrifi.

Yaris Cross er hannaður í Evrópu og framleiddur í Frakklandi. Toyota reiknar með góðum viðtökum á nýja bílnum og áætlar bílaframleiðandinn að 150.000 bílar seljist af Yaris Cross fyrsta árið í Evrópu.