ID.7 var tekinn í reynsluakstur á dögunum og stóð sig afar vel. Ytra útlit ID.4 er sportlegt og nútímalegt. Framljósin eru gagnvirkar LED-ljósaeiningar sem eru áberandi á framhlið bílsins. Framhliðin samanstendur af LED-ljósastiku í fullri breidd og sléttum, grilllausum framenda. Það er mikil og flott ljósasýning að aka þessum bíl í myrkri.

ID.7 er veglegur bíll og flottur á velli með hallandi þaklínu að aftanverðu sem gefur honum sportlegt coupe útlit. Hann er 4,94 metrar á lengd, 1,86 metrar á breidd og 1,53 metrar á hæð. 2,97 metra hjólhaf ID.7 gerir bílinn voldugan ásýndar.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði