Mímir Hafliðason hefur verið ráðinn forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Högum, en staðan er ný innan samstæðunnar.

Auk þess að leiða verkefni á sviði viðskiptaþróunar mun Mímir taka þátt í stefnumótun fyrir Haga og dótturfélög sem og í vinnu sem tengist mögulegum kaupum og sölum á fyrirtækjum.

Mímir hefur að undanförnu starfað sem ráðgjafi hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu McKinsey & Company í Danmörku. Þar áður starfaði Mímir um nokkurra ára skeið í stefnumótunarteyminu hjá Marel þar sem hann kom að ýmsum stefnumarkandi verkefnum og fjölda yfirtaka.

„Það er sérstaklega ánægjulegt að fá Mími með okkur í þessa vegferð. Hann býr að reynslu sem mun nýtast Högum vel í þeim verkefnum sem framundan eru. Við bjóðum Mími velkominn í hópinn og hlökkum til samstarfsins,“ segir Magnús Magnússon, aðstoðarforstjóri og framkvæmdastjóri stefnumótunar og rekstrar hjá Högum.

Mímir er með MBA-gráðu frá Harvard Business School, og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.