Menntasprotafélagið Evolytes hefur lokið 70 milljóna króna hlutafjáraukningu, sem leidd var af Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Evolytes hefur þróað heildstætt námskerfi sem kennir stærðfræði í gegnum námsleik fyrir spjaldtölvur, námsbækur og upplýsingakerfi fyrir kennara og foreldra. „Vörurnar vinna saman sem ein heild í gegnum gagnadrifin hugbúnað sem les og greinir getu barna í rauntíma og aðlagar námsefnið að getustigi þeirra til að hámarka námsárangur.“ segir í tilkynningu. Hlutafjáraukningin nýtist félaginu við markaðssetningu á Evolytes námskerfinu á erlendum mörkuðum og hraðar þróun kerfisins.

Námskerfi Evolytes er þróað til að bæta árangur barna í stærðfræði. Á Íslandi geta 26% barna ekki sýnt fram á hæfilega stærðfræðikunnáttu við lok grunnskólagöngu og UNESCO Institute of Statistics áætlar að 617 milljón nemendur á heimsvísu nái ekki lágmarkshæfni í stærðfræði, eða 6 af hverjum 10 börnum í heiminum. Að baki kerfinu liggja áralangar þverfaglegar rannsóknir sem sýna að börn geta með þessum hætti lært hraðar og með árangursríkari hætti en með hefðbundnum kennsluaðferðum.

Námskerfið hefur fengið jákvæð viðbrögð síðan það kom út fyrir einu og hálfu ári síðan. Rúmlega 40 skólar og 2.500 nemendur víðs vegar um Ísland nota nú Evolytes. Í tilkynningu segir að framundan sé markaðssókn hjá fyrirtækinu í Evrópu og örari þróun á námskerfinu til að styðja við breiðari aldurshóp, fjölbreyttara tækjaúrval og bæta við nýjum ævintýrum í Evolytes námsleikinn.

Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins:

„Nýsköpunarsjóður fagnar þátttöku í að byggja upp gagnlegar lausnir sem stuðla að betri menntun barna til framtíðar, hvort sem er hér á landi eða erlendis. Evolytes tengir saman nám og leik með börnum og kennurum en mikil þörf er á lausnum á þessu sviði. Við teljum að kerfið muni nýtast vel og hlökkum til samstarfsins með öflugu teymi Evolytes."

Mathieu Grettir Skúlason, stofnandi og framkvæmdastjóri Evolytes:

„Þessi fjármögnun gefur okkur tækifæri til að umbylta stærðfræðinámi barna og tryggja að þau fái tækifæri til að hámarka árangur sinn í stærðfræði. Með því að gera stærðfræðinám skemmtilegt, gagnadrifið og einstaklingsmiðað höfum við aukið námsárangur og bætt viðhorf nemenda til muna. Á sama tíma veitum við kennurum og foreldrum valdeflandi tæki þar sem þeir eru með rauntímayfirsýn á námsframvindu nemenda. Við höfum notið stuðnings frá Tækniþróunarsjóði til að gera þetta verðuga verkefni að veruleika og það er jafnframt mikil viðurkenning að fá Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins að fjármögnun félagsins. Með þessari fjármögnun getum við náð tæknilegu forskoti og hraðað markaðssókn í Evrópu."