Sam Bankman-Fried stofnandi FTX, hinnar gjaldþrota kauphallar með rafmyntir var í viðtali í dag við viðskiptatímaritið Forbes.

Bankman-Fried segir meðal annars í viðtalinu að Changpeng Zhao, forstjóri aðalkeppinatuarins Binance, hafi ekki meint nokkuð með tilboði sínu í FTX.

Bankman-Friedsegir að Zhao, sem er kallaður CZ, hafi ekki haft neinn áhuga á mikilvægum atriðum í tilboðinu, til dæmis verðinu. Hann telji því að tilboðið hafi aðeins verið gert til að koma höggi á FTX með því að hætta við kaupin.