Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnir skýrslu starfshóps um aðra orkukosti á fundi sem hefst kl. 11 og verður streymt hér að neðan.

Guðlaugur Þór skipaði starfshópinn á síðasta ári til kanna möguleika þess að nota fleiri leiðir til bættrar orkunýtingar og orkuöflunar. Starfshópurinn hefur nú skilað ráðherra tillögum sínum.

Verkefni starfshópsins var að kanna helstu leiðir til bættrar orkunýtingar og orkuöflunar, með hliðsjón af sviðsmyndum um aukna orkuþörf vegna markmiða ríkisstjórnarinnar um full orkuskipti fyrir árið 2040. Var starfshópnum falið að skoða sérstaklega nýja orkukosti á borð við sólarorku og sjávarorku, en einnig hvaða möguleikar felist í frekari nýtingu smávirkjana fyrir vatnsafl.

Skýrsla starfshópsins hefur að geyma um 50 tillögur sem m.a. snúa að sólarorku, sjávarorku, smávirkjunum fyrir vatnsafl, varmadæluvæðingu á smærri og stærri skala, bættri orkunýtni og sveigjanlegri orkunotkun.

Ásmundur Friðriksson þingmaður er formaður starfshópsins. Auk hans sitja Gunnlaug Helga Ásgeirsdóttir, sem er með MSc. í sjálfbærum orkuvísindum, og Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrrverandi þingmaður, í hópnum.