Matvælastofnun hefur veitt Bleikju ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Laugum í Rangárþingi ytra. Stofnunin hafði auglýst tillögu að rekstrarleyfi á vef Matvælastofnunarinnar þann 6. mars og rann frestur til að skila athugasemdum út þann 3. apríl sl.

Bleikja ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 100 tonna hámarkslífmassa í seiða- og mateldi á lax, bleikju og regnbogasilungi að Laugum.

Úttekt starfsstöðvar hefur þegar farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Bleikju ehf. að Laugum en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.