Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum apríl samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða 5 þúsund færri brottfarir en mældust í apríl í fyrra, eða 3,5% færri.

Ríflega þriðjungur brottfara voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta.

Flestar brottfarir í apríl voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna, 32.400 talsins, eða tæplega fjórðungur heildarbrottfara. Bretar voru í öðru sæti með 16.000 brottfarir, eða um ein af hverjum tíu brottförum.

Þá voru brottfarir Pólverja í þriðja sæti eða 6,1% af heild og Frakkar í því fjórða. Þar á eftir fylgdu Þjóðverjar, Ítalir, Danir, Kanadamenn, Spánverjar og Kínverjar.

Í tilkynningu segir að frá áramótum hafi um 593 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi en á sama tíma í fyrra voru brottfarir þeirra um 561 þúsund talsins. Samtals voru brottfarir á tímabilinu janúar til apríl í ár um 94,4% af þeim brottförum sem þær mældust á sama tímabili metárið 2018.

Brottfarir Íslendinga voru um 45 þúsund í apríl, 11.100 færri en í apríl 2023. Hafa ber í huga að utanferðir Íslendinga í tengslum við páska voru færri í mars í ár en í apríl í fyrra.