Einar Örn Ólafs­son, stjórnar­for­maður flug­fé­lagsins Play, sagði mikil­vægt að nýta næsta ár í að herða skrúfurnar í rekstrinum til að bæta rekstrar­af­komuna á upp­lýsinga­fundi fé­lagsins í gær.

Flug­fé­lagið hafi vaxið hratt síðustu mánuði og fór floti fé­lagsins úr sex vélum í tíu á árinu með til­heyrandi kostnaði. Á næstu ári verður hægt á vexti og hugsað um hag­ræðingu í rekstri.

„Al­mennt og heilt yfir þá líður okkur, án þess að tala fyrir alla í stjórninni, eins og það gangi býsna vel að reka þetta flug­fé­lag,“ sagði Einar á fundinum í gær.

Play til­kynnti í gær að sam­kvæmt stjórn­enda­upp­gjöri hefði fé­lagið skilað 10 milljóna dala rekstrar­hagnaði, eða sem nemur 1,3 milljörðum króna, á þriðja árs­fjórðungi, saman­borið við 1,3 milljónir dala á sama tíma­bili í fyrra.

Til að lesa meira

Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.

Verð frá 4.495 kr. á mánuði