Grípa þarf til takmörkunar á afhendingu víkjandi orku til fiskimjölsverksmiðja og fiskþurrkana, auk gagnavera sem stunda rafmyntagröft. Í tilkynningu Landsvirkjunar segir að gripið sé til þessara ráðstafana til að tryggja öryggi afhendingu í vetur til þeirra viðskiptavina sem samið hafa um slíkt.

Afhending á víkjandi orku verður stöðvuð frá og með næsta föstudegi, 1. desember. Sú stöðvun verður í gildi þar til miðlunarstaða hefur batnað.

„Ástæða aðgerðanna, sem eru ótímabundnar, er samspil erfiðs vatnsbúskapar, hárrar nýtingar stórnotenda á langtímasamningum og aukinnar eftirspurnar heimila og smærri fyrirtækja, sem Landsvirkjun kappkostar að tryggja orku.“

Líklega fram á vor

Landsvirkjun segir að reynslan sýni að óverulegar breytingar verða á innrennsli yfir kaldasta tíma ársins „svo búast má við að skerðingin standi fram á vormánuði“.

Á meðan hún er í gildi býður Landsvirkjun ekki upp á gerð neinna nýrra samninga um afhendingu forgangsorku til stórnotenda á árinu 2024.

Eftirspurn mikil að undanförnu

Landsvirkjun segir að eftirspurn eftir raforku á Íslandi hafi verið mikil á undanförnum misserum. Þar fari saman sterk eftirspurn stórnotenda á sama tíma og eftirspurn heimila og smærri fyrirtækja hafi aukist.

„Þegar eftirspurn er mikil er raforkukerfið viðkvæmara fyrir stöðunni í vatnsbúskapnum og líklegra að grípa þurfi til skerðinga, eins og fyrri dæmi sanna. Viðskiptavinir á borð við fiskimjölsframleiðendur og gagnaver í rafmyntagreftri sem ekki hafa gert samninga um kaup á forgangsorku verða fyrir áhrifum þegar vatnafar gefur eftir og afhending til þeirra takmörkuð í samræmi við ákvæði samninga.“

Þurrt tíðarfar

Meðal ástæðna fyrir þeim aðstæðum sem hafa skapast er mjög þurrt tíðarfar á Þjórsársvæði frá byrjun júlímánaðar sem olli því að Þórisvatn fylltist ekki í haust og niðurdráttur hófst snemma á svæðinu, eða upp úr miðjum september. Önnur miðlunarlón Landsvirkjunar fylltust í sumar og Blöndulón og Hálslón fóru af yfirfalli í lok september.

„Fylling miðlunarforða í upphafi vatnsárs, sem byrjar 1. október, var 93%. Það samsvarar því að um 350 GWh hafi vantað í forðann í upphafi vetrar. Fyrir utan eina haustlægð um miðjan október hafa þessir þurrkar haldið áfram á hálendinu. Niðurdráttur miðlunarlóna hefur verið mjög eindreginn og þróunin á Þjórsársvæði sambærileg þróuninni haustið 2021, sem þá reyndist viðvarandi.“