Huppuís skilaði 49 milljóna króna hagnaði árið 2023, samanborið við tæplega 37 milljóna hagnað árið áður. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 70 milljónir króna í ár vegna rekstrarársins 2023, að því er kemur fram í nýbirtum ársreikningi.

Tekjur Huppuíss, sem er stærsta ísbúðakeðja landsins, jukust um 24% á milli ára og námu 903 milljónum króna í fyrra.

Rekstrargjöld jukust um 23,4% milli ára og námu 834 milljónum. Rekstrarhagnaður (EBIT) félagsins jókst um þriðjung og nam 48 milljónum.

Ísbúð Huppu var stofnuð á Selfossi árið 2013 af vinkonunum Telmu Finnsdóttur og Eygló Rún Karlsdóttur og mökum þeirra, þeim Gunnari Má Þráinssyni og Sverri Rúnarssyni. Umsvif fyrirtækisins hafa aukist til muna síðan þá en 10 ísbúðir eru reknar undir merkjum Huppuíss í dag.

Þau seldu helmingshlut í félaginu til Eignarhaldsfélagsins Kolku, aðaleiganda Emmessís, árið 2021 fyrir 160 milljónir króna en Huppa og Emmessís hafa frá upphafi átt í samstarfi við framleiðslu á ísnum sem Huppa selur.

Eignir Huppuíss voru bókfærðar á 210 milljónir í lok síðasta árs samanborið við 134 milljónir árið áður. Eigið fé jókst úr 84 milljónum í 133 milljónir á milli ára.