Einar Long, sem rekið hefur Grillbúðina um árabil, hefur ákveðið að setjast í helgan stein og afhendir keflið áfram en Húsasmiðjan mun taka við þeim vörumerkjum sem seld hafa verið í versluninni um 17 ára skeið.

Helsta áhersla Grillbúðarinnar hefur verið á þýsku Landmann og Enders grillunum ásamt ýmsum tengdum vörum og fylgihlutum.

„Það hafa verið forréttindi að geta aðstoðað Íslendinga við að grilla síðustu árin, enda erum við meiri grillþjóð en gengur og gerist. Erlendis grilla menn yfirleitt þegar veður er gott en við grillum hvernig sem viðrar. Á þessum tímamótum viljum við hjónin þakka öllum okkar viðskiptavinum fyrir tryggðina í gegnum árin en nú gefst okkur meiri tími til að sinna fjölskyldu og áhugamálum,“ segir Einar.

Húsasmiðjan tekur við vörumerkjum Grillbúðarinnar og bætast þau vörumerki við þau grill og aukabúnað sem fyrir var í Húsasmiðjunni.

„Einar hefur verið ákveðinn kyndilberi í íslenskri grillmenningu og það er okkur heiður að taka við Landmann og Enders af honum og bjóða viðskiptavinum okkar upp á enn fjölbreyttara og betra úrval grilla og þeirra aukahluta sem fylgja. Einnig breikkar jafnframt úrval Húsasmiðjunnar í pallahiturunum, eldstæðum og í ýmsum ljósum,“ segir Árni Stefánsson, forstjóri Húsasmiðjunnar.

Í tilkynningu segir að Húsasmiðjan muni á næstu dögum kynna Grillbúðina fyrir viðskiptavinum Húsasmiðjunnar með tilhlökkun um gott grillsumar fyrir alla grillara landsins.