Norðurál hlaut á dögunum Fjörusteininn, umhverfisverðlaun Faxaflóahafna en verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 2007.

Verðlaunin hljóta fyrirtæki sem starfa á hafnarsvæðunum, sýna fram á framsækni í umhverfismálum og eru til fyrirmyndar hvað varðar frágang á lóðum og snyrtilegt umhverfi.

Norðurál segir í tilkynningu að þetta sé í annað skipti sem fyrirtækið hlýtur umhverfisverðlaunin á innan við ári en í október síðastliðnum var félagið valið Umhverfisfyrirtæki ársins af Samtökum atvinnulífs.

„Það er mikill heiður fyrir okkur hjá Norðuráli að hljóta Fjörusteininn í ár. Við leggjum stöðugt áherslu á að okkar starfsemi sé í sátt við umhverfið og að umhverfisáhrif séu eins lítil og hægt er ásamt því að vera með ábyrga nýtingu á orku og hráefnum,” segir Sigrún Helgadóttir, framkvæmdastjóri Norðuráls Grundartanga.

Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að frágangur, aðkoma og umgengni á lóð Norðuráls á Grundartanga hafi verið til fyrirmyndar og að kolefnisspor Norðuráls við framleiðslu áls sé með því lægsta í heiminum.

„Norðurál hefur sýnt að það er framsækið þar sem það hefur unnið markvisst að verkefnum er draga úr umhverfisáhrifum fyrirtækisins og hefur verið virkur þátttakandi í nýsköpun og þróun tæknilegra lausna með til að mynda stuðningi við rannsóknarverkefni í áliðnaði,“ segir meðal annars í rökstuðningnum.