Kristín Björg Árnadóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Orkunnar, dótturfélags Skeljungs. Orkan rekur fjölorkustöðvar og verslanir undir merkjum Orkunnar, verslanir 10-11 og Extra. Auk þess heyra Löður, Lyfsalinn og Gló undir samstæðu Orkunnar.

Kristín Björg starfaði síðast sem fjármálastjóri hjá Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins og DV. Þar áður starfaði hún hjá Skaganum 3X sem fjárhagsstjóri og svo á fjármálasviði endurskoðunarfélagsins Deloitte. Þá hefur Kristín setið í stjórn ýmissa félaga og fyrirtækja.

Kristín Björg útskrifaðist sem markaðshagfræðingur árið 2004 frá Vitus Bering í Danmörku.

Ólafur Þór Jóhannesson, forstjóri Skeljungs:

„Það er mikill fengur í að fá reynslumikla manneskju eins og Kristínu inn í stjórnendahóp Orkunnar og þau spennandi verkefni sem þar eru framundan.”