Marinó Örn Tryggvason hefur látið af störfum sem forstjóri Kviku banka, að því er kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar. Stjórn Kviku hefur ráðið Ármann Þorvaldsson sem forstjóra bankans og hefur hann þegar hafið störf.

„Stjórn Kviku banka og forstjóri bankans, Marinó Örn Tryggvason, hafa í dag gert samkomulag um starfslok forstjóra bankans. Viðræður um starfslokin áttu sér stað að frumkvæði forstjórans. Hann hefur látið af störfum,“ segir í tilkynningunni.

Marinó Örn Tryggvason hóf störf sem aðstoðarforstjóri Kviku í ágúst 2017 og tók við sem forstjóri í maí 2019.

Ármann Þorvaldsson hefur áður starfað sem forstjóri Kviku á árunum 2017-2019 og var aðstoðarforstjóri bankans árið 2019 til ársloka 2022. Ármann útskrifaðist með MBA gráðu frá Boston University árið 1994 og er með BA gráðu í sagnfræði frá Háskóla Íslands.

Marinó Örn Tryggvason fráfarandi forstjóri Kviku:

„Ég hóf störf hjá Kviku fyrir rúmum sex árum og hef verið forstjóri félagsins síðustu fjögur ár. Á þessum tíma hefur bankinn breyst mikið og er núna orðið eitt af stærstu og verðmætustu fyrirtækjum landsins. Ég er stoltur af því hvað okkur, sem störfum hjá félaginu, hefur tekist að efla rekstur þess og vöxt.

Félagið stendur á ákveðnum tímamótum þar sem fjárfestingar undanfarinna ára í innri vexti, svo sem útvíkkun á fjártæknistarfsemi, eru farnar að skila sér. Þá hefur Kvika aukið samkeppni á innlendum fjármálamarkaði sem skilar miklum ávinningi til samfélagsins. Framundan eru mikil tækifæri fyrir frekari vöxt og uppbyggingu bankans á þessum grunni.

Á undanförnum vikum hef ég hugsað um það hvort ég telji rétt að ég leiði félagið í áframhaldandi uppbyggingu. Niðurstaða mín var að ég óskaði eftir því að ljúka störfum og tel það skynsamlega niðurstöðu bæði fyrir mig og félagið.

Mig langar til þess að þakka stjórn og starfsmönnum fyrir gott samstarf á undanförnum árum. Hjá félaginu starfar stór hópur öflugs starfsfólks og ég mun sakna samstarfsfélaganna en á sama tíma verður spennandi að fylgjast með þeim ná áframhaldandi árangri.“

Sigurður Hannesson, stjórnarformaður Kviku:

„Kvika hefur eflst mjög síðan Marinó tók við sem forstjóri bankans og hvílir starfsemi bankans á fjölbreyttari stoðum í dag. Á þessum tímamótum vill stjórn Kviku þakka Marinó fyrir störf hans í þágu bankans og stjórnin óskar honum velfarnaðar áfram í sínum störfum.

Þá er það ánægjuefni að geta tilkynnt um ráðningu Ármanns Þorvaldssonar sem forstjóra bankans. Ármann hefur strax störf sem forstjóri og fáir sem þekkja til starfsemi Kviku jafnvel og hann. Reynsla og þekking Ármanns á fjármálamarkaði gerir það að verkum að hann verður öflugur leiðtogi bankans sem getur unnið af krafti úr þeim fjölmörgu tækifærum sem blasa við Kviku.“

Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku:

„Það er mér mikið tilhlökkunarefni að taka við forstjórastarfinu hjá Kviku banka af Marinó Erni eftir farsæla stjórnartíð hans, þar sem samstæðan hefur styrkst og stækkað umtalsvert. Ég sé fjölmörg tækifæri til þess að efla Kviku áfram og það verður verkefni næstu missera að vinna úr þeim til hagsbóta fyrir hluthafa bankans.

Mér er nýtt starf ekki alveg ókunnugt, en Kvika hefur mikið breyst frá því ég hélt um stjórnartaumana og ég er mjög spenntur að leiða þetta öfluga félag og það frábæra fólk sem þar starfar.“